Lyflækningadeild
 |
Gunnar yfirlæknir |
 |
Birna deildarst. |
Yfirlæknir Gunnar Valtýsson
Deildarstjóri Birna Steingrímsdóttir
Lyflækningadeildin var opnuð þegar spítalinn var tekinn í notkun árið 1926. Hún er staðsett á fyrstu hæð spítalans. Deildin hefur á að skipa 22 sjúkrarúmum.
Á deildinni starfa hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, ritari auk starfsfólks í býtisbúri og ræstingu.
Hjúkrun
Hugmyndafræði hjúkrunar á St. Jósefsspítala er umhyggja og á hún að endurspeglast í þeirri hjúkrun sem veitt er á lyflækningadeildinni. Skipulagsform hjúkrunar er einstaklings-hæft, þannig að ákveðinn hjúkrunarfræðingur ber ábyrgð á þeirri hjúkrun sem veitt er. Sjúklingur getur ávallt snúið sér til hans.
Starfsvið
 |
Eygló ritari og Birna deildar-stjóri brosa í móttökunni |
Meginhlutverk lyflækningadeildar er að veita sértæka meltingar- og lyflækningaþjónustu. Áhersla er lögð á að veita skjólstæðingum bestu mögulega þjónustu.
Tölur lýsa starfsemi deildarinnar vel. Árið 2003 voru innlagnir á deildina 957, legudagar voru 6.107 dagar og meðallegutími var því 6,38 dagar. Árið 2004 voru innlagnir á 1.033, legudagar 6.384 og meðallegutíminn því 6,18 dagar.
 |
Margrét og Þyri huga að sjúkraskrám | Deildin hefur á að skipa afar hæfum sérfræðilæknum sem eru:
Gunnar Valtýsson, yfirlæknir og sérfræðingur í lyflækningum, innkirtla- og efnaskipta-sjúkdómum
Ásgeir Theodórs, yfirlæknir St. Jósefsspítala, sérfræðingur í lyflækningum og meltingarsjúkdómum
Guðmundur Ragnarsson, sérfræðingur í lyflækningum og meltingarsjúkdómum
Kjartan B. Örvar, sérfræðingur í lyflækningum og meltingarsjúkdómum og
Sigurjón Vilbergsson, sérfræðingur í lyflækningum og meltingarsjúkómum.
Almennar upplýsingar
Innlögn á St. Jósefsspítala
Við innlögn á spítalann er gott að fara á vefsíðuna "Innlögn á St. Jósefsspítala" en þar er greint frá því helsta sem hafa ber í huga.
Heimsóknir
Fastir heimsóknartímar eru alla daga frá kl 15-16 og kl 19-20 á kvöldin.
Verðmæti
Sjúklingum er ráðlagt að hafa sem minnst meðferðis af skartgripum eða öðrum verðmætum. Hægt er að geyma verðmæti í læstri hirslu. Spítalinn tekur ekki ábyrgð á verðmætum sjúklinga.
Til afþreyingar
Á dagstofu eru dagblöð, bækur og tímarit sem heimilt er að taka á stofur. Sjónvarpstæki er á dagstofu, einnig á deildin tvö lítil sjónvarpstæki sem hægt er að hafa á sjúkrastofum. Útvarpstæki er við hvert rúm ásamt heyrnartæki.
Reykingar
Reykingar eru alls ekki leyfðar. Við viljum benda reykingafólki á að nota nikótíntyggjó, plástur eða annað sem hentar þegar það kemur til meðferðar eða dvalar á sjúkrahúsinu.
Þagnarskylda
Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Starfsmenn St. Jósefsspítala eru bundnir þagnarskyldu og skulu gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem þeir komast að í starfi sínu um heilsufar sjúklinga, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þagnarskyldan helst þótt starfsmenn láti af störfum.
Tengingar við fræðslubæklinga og vefsíður:
Til baka
|